|
|
08.10.2007 19:33:34 / Dröfn
http://Drabban.blogspot.com var að frétta að hitt sé ekki að virka. Nema Íris Dögg kemst alltaf inn. Prófið núna!!! KVeðja Drabban
»
04.10.2007 14:38:16 / Dröfn
»
03.10.2007 22:29:49 / Dröfn
http://drabban.blogspot.com/ búin að skipta um blogg svona til að prófa hvort það virki ekki betur
»
21.09.2007 21:50:55 / Dröfn
Ég er orðin hundleið á því að skrifa hér inn og ekkert af því skilar sér. ég er ekki dauð eða neitt slíkt. Bara eitthvað að þessu bloggi. vona að það lagist sem fyrst. kv Drabban
»
20.08.2007 18:29:46 / Dröfn
Jú jú maður er á lífi. Bara ekki nógu spræk til að blogga eða réttara sagt þá hef ég ekki haft tíma til þess þar sem allur frítími er notaður til að mála húsið að utan. Það er búið að vera hálf leiðinlegt veður eða ekki veður. Það eru alltaf að koma smá dropar og allir vissir um að nú fari að rigna á fullu, gengið frá öllu málningardótinu og svo farið inn en svo kemur engin rigning og þá þarf maður að fara aftur út og byrja aftur. Það er kannski ekki mikið eftir en það sem er eftir er svoldið maus þannig að fyrir okkur lofthræddu manneskjurnar á heimilinu þá er það hellings mál. Ég hef ekki fengið svona mikið af harðsperrum í langan tíma en það tekur svo á að standa uppi í stiga og skjálfa í fótunum og vera að halda jafnvægi.Allir vöðvar í gangi þá! Ég er farin að vinna aftur og maður reynir að fara beint í málningafötin þegar heim er komið. Það er ekki mikið á dagskránni hér á heimilinu. Kannski bara að njóta þess að hafa Höllu og Rögnu hér í nokkra daga en nú fer að styttast í að þær fari og mér finnst tíminn vera búin að vera allt of fljótur að líða og þar sem ég var í fríi í mánuð og mest í burtu þá hefur maður lítið notið þess að gera eitthvað með þeim. En mikið er nú gott samt að hafa þær. Eintómir gleðigjafar og skemmtikraftar. Það er aðeins farin að koma svona haust -stemmari í mann þar sem allt skólaliðið er að týnast burt af staðnum og maður sér fram á langan og tilbreytingalausann tíma framundan. Ég þarf svo að fara að finna mér einhver áhugamál. Planið um helgina var að fara suður í afmælil hjá Svenna vini mínum sem ég sé nánast aldrei þar sem hann býr í Danmörku, en það lýtur út fyrir að ég sé ekki að fara neitt. Ógó dýrt að fljúga sem ég hef ekki efni á svona eftir sumarfríið og svo er þetta síðast helgina stelpnanna og mig langar að gera eitthvað með þeim. Kemur allt í ljós síðar. Jæja það er best að fara og gæða sér á því sem hún Ragna var að malla í eldhúsinu. Miðað við ilminn þá hlýtur þetta að vera eitthvað svaka gott. Kveðja Drabban
»
14.08.2007 22:09:53 / Dröfn
Af því að ég er nú búin að vera í sumarfríi frá vinnu þá verður að
segjast að ég er líka búin að vera í fríi frá blogginu líka.
Ég hef voða lítið verið að hanga í tölvunni eins og ég geri yfir
veturinn. Ég skrapp ein til Akureyris á fimmtudaginn síðasta
og hitti vinkonur mínar 4 þar. Svo langt síðan ég hef hitt þær og
það var rosa gaman að hitta þær. Ég kíkti svo í heimsókn á
gamla vinnustaðinn minn og heilsaði upp á liðið þar. það voru
reyndar flestir farnir heim þar sem ég var svo seint á ferðinni en
ég hitti samt nokkrar. Ég fór svo á Greifann að borða og hann
klikkar að sjálfsögðu ekki. Kíktum út á föstudagskvöldið en það var
nánst enginn á djamminu þannig að við fórum heim, borðuðum kalda
pizzu og spjölluðum til 6 um morguninn. Ég brunaði heim á
laugardaginn aftur, endurnærð eða þannig þar sem það var lítið um
svefn þessa tvo daga mína á Akureyri. Við erum nú að undirbúa
það að mála húsið að utan, byrjuðum í gær en svo passar til að það
er búið að vera rok í allan dag og enn verri spá á morgun.
Við sem ætluðum að drífa þetta af áður en ég fer að vinna aftur sem
er á fimmtudaginn og mamma búin að taka sér frí í vinnunni til að
mála. Um helgina ætlar Íris að fara til pabba síns og ég ætla
að nota tækifærið og sofa út, eða reyna það alla vega en það hefur
ekki gengið allt of vel undanfarið. Ég sofna yfirleitt í tvo tíma
og vakna svo og ligg andvaka fram eftir nóttu og svo á morgnanna er
ég svo þreytt og þá vildi ég helst sofa fram yfir hádegi en það er
víst ekki hægt þegar sumir eru heima, Ég hef svoldið verið að múta
unglingnum með því að horfa á Tomma og Jenna meðan ég kúri
aðeins lengur. Þetta fer nú samt að hætta að vera hægt þegar
maður þarf að drullast í vinnu. Annars er ekkert að
frétta. Ég ætla að fara að læsa barnalandssíðunni hennar
Írisar þar sem það var verið að hvetja fólk til þess þar sem
einhverjir gaurar í Rússlandi og víðar eru farnir að sækja sér efni
á barnalandssíður. Ég er ekki búin að ákveða lykilorðið en
það verður ekki flókið og þeir sem vilja fá lykilorðið þegar þar að
kemur þurfa bara að spurja því fyrir mér er öllum sem þekkja mig
velkomið að skoða hana. Annars kveð ég bara núna Adios
Amigos.Drabban
»
07.08.2007 23:18:21 / Dröfn
Verslunarmannahelgi! hvað er nú það? Ég er alveg hætt að
nenna svoleiðis stússi. Það hvarflaði samt að mér að fara í Ásbyrgi
og vera þar en ég hætti nú alveg við það þegar ég frétti af
rigningunni sem var spáð þar og var. Í staðinn fóru ég, mamma
og Íris rúnt á Neskaupsstað á laugardaginn, fórum seint af stað og
vorum ekki komnar fyrr en um 3, það var nú ekki mikið í gangi en
við fórum í hoppukastala og eitthvað skemmtilegt fyrir Írisi. Svo
fórum við á Egilsstaði þar sem við náðum í Freyju í flug. Svo
heim að sofa. Á sunnudaginn fóru svo ég, Halla og Ragna á
ball með Todmobile á Neskaupsstað og það var ljómandi gaman en
djöfull var ég þreytt þegar við komum til baka klukkan að verða 8
um morguninn! það var svoooo sofið út og ég fór nánast ekkert fram
úr á mánudaginn. Ég er alveg með eftirköst eftir
bjórdrykkjuna enda fer maginn í mér alltaf í rugl ef ég drekk bjór
en þar sem það var ekki til Breezer þá "neyddist" ég til að fá mér
bjór. Mér fannst nú frekar skondið að fyrir utan ballið
þá hitti ég strák sem var með mér í skóla á Laugarvatni og það
fyndna er að hann er búin að vera að vinna hér á Djúpavogi í allt
sumar og rúmlega það og ég hafði ekki hugmynd um það. Það er
greinilegt að það fer ósköp lítið fyrir mér hér því hann virðist
vera heilmikið á ferðinni hér og við höfum bara aldrei rekist á
hvort annað. Svo getur maður farið í Legoland í Danmörku og
hitt fullt af fólki þar sem maður átti ekki von á að hitta.
Svona er þetta bara. Í dag var svo gott veður hér á Djubbanum að
við stelpurnar í Hvoli drifum okkur í sund og lágum í útipottinum í
sólbaði í heillangann tíma, fórum svo í garðpartý til Beggu og
fjölskyldu í Borgarlandið. Sátum úti og sóluðum okkur. Það er
víst góð spáin fyrir morgundaginn svo maður neyðist kannski til að
finna sér eitthvað að gera utanhúss. Ég ætla að skella 3 mismunandi
málningum á húsið og velja svo lit til að mála húsið að utan.
Mig dauðlangar nú samt að kíkja í Atlavík sem fyrst og það er þá á
morgun eða hinn þar sem það er spáð rigningu um
helgina. Jæja nenni ekki meiru, kveðja Drabban
»
30.07.2007 23:53:11 / Dröfn
Gvöööð hvað ég hlakka til að komast heim til mín á morgun!!!! Ég er
alveg búin að vera nógu lengi hér í borg óttans eða á maður að
segja borg dauðans. Það virðist vera að hér sé ekki lengur óhætt að
búa eða vera. Ég er mjög þakklát fyrir að búa úti á landi og
það yrði það síðasta sem ég mundi gera að ákveða að búa í
Reykjavík! Aldrei að segja aldrei samt því það er aldrei að
vita hvort og hvenær maður skellir sér í nám en það er á hreinu að
ég reyni allt til að Reykjavík verði ekki fyrir valinu!
Ég er búin að eyða slatta hér en að sjálfsögðu bara í
nauðsynjavörur! Eyddi 10.000 króna gjafabréfinu mínu sem ég
fékk í afmælisgjöf á innan við hálftíma. En mér virðist vera
ómögulegt að finna mér skó og jakka sem er akkúrat það sem mig
vantar svo mikið núna. Það verður sennilega komin vetur þegar
ég finn sumarjakkann sem ég er að leita að og svo öfugt að
vetrarjakkinn sem ég fer svo að leita að í haust verður á vegi
mínum í vor þegar ég þarf ekki á honum lengur að halda. Þetta
er alltaf svona. Ég er búin að fara þrisvar á kaffihús,
einu sinni með Ölfu og vinum, með Kristjönu og svo með Eydísi í
kvöld. Ég er mjög líklega ekki á leiðinni í háttinn alveg
strax þar sem ég var í tölvunni til að verða 5 í nótt og vaknaði
ekki fyrr en um 1 í dag og svo sofnaði ég yfir sjónvapinu
seinnipartinn þannig að ég ætti að vera þokkalega útsofin í
bili. Væri samt mest til í að vera að fara að sofa núna og
vakna snemma á morgun. Ég á flug klukkan 1 á morgun og þá verð ég
líklega grútsyfjuð þar sem ég á eflaust eftir að hanga í tölvunni
fram á nótt og sofa lengi á morgun. Ömurlegt að vera búin að
snúa við sólarhringnum. En það er mission næstu viku að snúa
honum aftur við. Ótrúlegt hvað ég get endalaust fundið
mér eitthvað að gera í tölvunni, ekki það að það sé neinn á msn til
að tala við svona seint en ég get alltaf fundið mér eitthvað að
gera. Ef það er einhver sem er mikið fyrir að tala á msn þá
er viðkomanda frjálst að adda mig inn hotmailið mitt er
rofnfreysdottir@hotmail.com">drofnfreysdottir@hotmail.com
Jæja nóg í dag. Kveðja Drabban
»
27.07.2007 19:14:08 / Dröfn
Þá er maður komin heim á klakann aftur úr sólinni í Danmörku.
Við mæðgur flugum út frá Egilsstöðum á þriðjudaginn 17 komum til
Danmerkur klukkan 1:40 á dönskum tíma, fórum með taxa til Hennyar
og Viktoríu þar sem við fengum að gista eina nótt þar sem öll
hótelplön fóru í vaskinn. Tókum lestina frá Köben til Kolding
á miðvikudeginum og Ansý vinkona og stelpurnar hennar Sara Viktoría
og Brynja Mary tóku á móti okkur. Strax á fimmtudeginum fórum
við stelpurnar í Ljónagarð sem er dýragarður með ótrúlega mörgum
dýrum og meðal annars getur maður farið á bíl inn í sérstakann
ljónagarð í dýragarðinum og þar eru ljónin laus og maður keyrir
eftir vegi og getur séð ljónin alveg upp við bílana. Alveg mögnuð
sjón að sjá þessi svaka dýr svona live og svona nálægt. Á
föstudeginum fórum við mæðgur ásamt Söru Viktoríu sem er eins og
hálfsárs í smá búðarráp meðan Ansý og Sverrir maðurinn hennar fóru
í smá útréttingar. Ég fór meðal annars í H&M og þar fékk ég
alveg þokkalega útrás í barnafötunum og dressaði unglinginn minn
upp og rúmlega það. Fáránlegt hvað það er ódýrt í danmörk miðað við
hér. Svo á laugardaginn var farið í leikjaland sem er svona
stór skemma full af allskyns leiktækjum og hoppukastulum fyrir
krakka og þar var fínt að vera því það var rigning úti. Á
sunnudeginum fórum við svo á ströndina rétt hjá og það var æðislegt
að sitja bara í sandinum og slaka á og leifa stelpunum að leika sér
í sandinum og vaða í sjónum. Um kvöldið fórum við Ansýu tvær út að
borða á Mexicanskan stað. Ansý var að bjóða mér út að borða í
tilefni afmælis míns í júní. Það var æðislega kósí hjá
okkur að fara bara tvær,meðan Sverrir var heima með
stelpurnar, við gátum svo talað saman í rólegheitunum. Við fengum
svaka góðann mat og vorum alsælar á eftir. Á mánudaginn fórum
við svo í Legoland og það var ógeðslega margir þar en við skemmtum
okkur svakalega vel. Við hittum Hafdísi, Davíð,Viktor,Reyni og
Mundu þar. Þau voru að borða á sama stað og við á sama tíma,
svoldil tilviljun finnst mér á svona stórum stað. Ég vissi af þeim
í Danmörku en átti alls ekki von á því að hitta þau. Svo eitt
skiptið þegar við komum út af salernunum þá stóð þar kona sem ég
kannaðist svo við og ég horfði á hana og hún á mig og ég sem er svo
ómannglögg var ekki viss og þorði nú ekki að segja neitt ef þetta
skildi nú bara vera einhver útlendingur, þar var ekki fyrr en konan
sagði ,,bíddu nú við" og horfði á mig að ég fattaði hver hún var.
Það var Valrún, kona sem passaði mig og Rán systur þegar við vorum
litlar og hún hefur alltaf verið í sambandi við mömmu síðan. Það
var svo gaman að hitta hana og mér fannst þetta nú alveg tilviljun
líka, að við þyrftum báðar að fara á salernið á sama tíma og á sama
stað þar sem það eru nú slatti mörg klósett um allt Legoland. En
svona er nú heimurinn lítill! Við vorum allar alveg
þreyttar eftir Legoland og stelpurnar sofnuðu allar í bílunum á
leiðinni heim. Frábær staðsetning sem Ansý og fjölskylda eiga heima
því það voru 10-15 mínútur að keyra í alla þessa garða og allt sem
við fórum í. Á þriðjudeginum fórum við mæðgur svo í búðir og tókum
aðeins á því. Og á miðvikudaginn fórum við Ansý svo bara tvær út að
versla meðan Sverrir var enn og aftur heima með skvísurnar. Það er
sko ekki amalegt að fara með Ansý í búðir því hún hefur svoooo
gaman af því að versla. Ef hún hefur þá ekki verslað meira en ég.
Hún réttlætti það nú með því að hún kæmist svo sjaldan út að versla
því Sverrir er búin að vera svo mikið í skólanum. Sverrir var að
klára skólann í júní og er orðin þyrluflugmaður en er svo að byrja
í blindflugi núna og næstu 6 vikurnar. En allavega fórum við
vinkonurnar heim með slatta í poka. Ég verð nú að viðurkenna
að ég verslaði mér nú ekki mikið en það má segja að Íris sé í góðum
málum á næstunni. Ég reyndi nú samt að kaupa ekki bara föt sem hún
notar strax heldur stærri stærðir sem ættu að duga næsta árið eða
lengur. Það er náttúrulega ekki eðlilegt hvað hún stækkar hratt
þessi krakki og maður hefur ekki við að endurnýja í skápnum hennar.
Við mæðgur ásamt Brynju Mary tókum svo flugið heim á
miðvikudagskvöldið frá Billund til Keflavíkur. Foreldrar Ansýar
tóku svo á móti okkur á flugvellinum og keyrðu okkur til
Reykjavíkur. Brynja var að fara til að vera hjá þeim. Við
fórum til Ölfu þar sem ég er enn en Íris fór til Reyðarfjarðar í
gær til pabba síns og c.o. Ég er aftur á móti bæði búin að
vera að slaka á og svaf til að verða 2 í dag enda orðin langþreytt
eftir Danmörkina. Ég svaf svo illa þar út af hita og kannski
pödduhræðslu líka því það eru engar smá kóngulær þar og ein þeirra
skellti sér í hárið á mér og ég var sko ekkert róleg. Náði að
dangla í hana með skó þegar hún var komin niður á mjöðmina á mér.
Eins gott að ég fékk ekki skófar í mjöðmina því ég sló alveg með
smá krafti til að drepa hana örugglega!!! Ég held að ég vilji
hvergi búa nema á íslandi þar sem eru bara litla húsflugur og
nánast engar ljótar pöddur. Við Alfa og nokkrir vinir hennar
kíktum aðeins út í gær og fórm m.a. á Sirkus og ég var þar í fyrsta
skiptið og það má nú segja að þar sé stórt samansafn af sérstökum
týpum en það var samt gaman. Í dag var Alfar svo búin snemma að
vinna og við fórum í bæinn að versla og ég eyddi m.a 10.000
inneigninni minni í kringlunni sem ég fékk í afmælisgjöf. Í kvöld
er slökun í gangi en svo er planið að fara á djammið á morgun og
drekka tollinn! Ég keypti mér að sjálfsögðu Captain Morgan og
hlakka bara til að fá mér því hann er svoooo góður. Ég
hef svo sem ekkert svakalega gaman að djamma hér í Rvk en ég ætla
samt að gefa því sjens annaðkvöld. Ég fer svo heim á
þriðjudagin og það verður fínt að slaka á heima það sem eftir er af
sumarfríinu. Jæja enough í dag. Kveðja Drabban
»
16.07.2007 18:55:17 / Dröfn
Tá er ég komin í sumarfrí!!! Loksins loksins. Ég og Íris
erum að fara til Danmerkur á morgun í heimsókn til Ansýar vinkonu
minnar og fjölskyldu sem búa þar. Ég var komin með tvö plön
fyrir sumarfríið mitt en þau klikkuðu bæði og ég var ekki að nenna
að hanga hér í mánuð og gera ekki neitt þannig að við skelltum
okkur bara á 10 daga ferð til Kolding. það eru víst nokkrir
skemmtigarðar þarna í nágreninu við þar sem við verðum og við erum
ýkt spenntar. Það eina slæma við þessa ferð er að við fljúgum
frá Egilsstöðum (sem er fínt, þá spara ég ferð suður) en lendum
ekki fyrr en að verða 2 um nóttina í Köben. Ég þarf því að redda
gistingu í köben í eina nótt áður en við tökum lest áfram til
Ansýar. Það tekur um 2 og hálfan tíma að fara á milli en þar sem
við komum um nótt þá getum við ekki farið beint til Kolding. Það er
ekkert skemmtilegt að vera að þvælast með krakka um miðja nótt á
milli staða en hún Íris mín er svo meðfærileg í svona öllu að ég
hef svo sem engar áhyggjur á að hún meiki þetta ekki. Hún sefur
vonandi bara í flugvélinni á leiðinni út. Ég ætla að setja
mjög lítið niður í tösku en reyna að koma með fulla tösku til
baka. Það er svoldið farið að vanta flíkur í skápinn hjá
Írisi þar sem hún stækkar og stækkar allt of hratt. Ég verð
aftur á móti ánægt ef ég get keypt mér jakka og skó!
Það var svo gaman hjá mér í síðustu viku þrátt fyrir það að það
væri síðasta vikan fyrir sumarfrí. þar var bara svo margt annað sem
gladd mig. T.d voru Kristjana bekkjasystir og Eydís (er hér
enn) í vikunni og við ásamt Júllu og Særúnu fórum út að borða á
hótelið og rifjuðum upp ýmist skemmtilegt (og hallærislegt) sem við
tókum upp á þegar við vorum í grunnskóla. Ég held að ég geti talið
á annarri skiptin sem við Kristjana höfum hitst síðan við kláruðum
grunnskólann og það líður sko allt of langt á milli. Á
þriðjudaginn komu Halla og Ragna til okkar og ég fór að sækja þær á
Egilsstaði þegar þær komu með flugi, nánast beint af Hróarskeldu og
það var nú meira hvað það var skrautlegt lið sem kom með þeirri
vél. Þær eru búnar að koma sér fyrir í sitthvoru herberginu og við
erum búnar að vera duglegar að fara í sund og brasa eitthvað saman.
Um helgina komu svo Freyja, Regína, Björn og Addi og voru hér á
afmælishátíð Ríkarðssafns og það var mjög gaman. Ég, Halla og Ragna
og fleiri fórum í Löngubúð á föstudagskvöldið að hlusta á
frændsystkinin, Írisi Birgis, Gumma Hjálmar og Ásgeir Ævar spila,
fengum okkur sitthvorn bjórinn og fórum svo heim. Það fóru flestir
á barinn á eftir en við vorum bara ekki að nenna því. Enda vorum
við að bíða eftir Regínu, Birni og Freyju í hús að sunnan. Þau komu
um 1 og þá var nætur-kaffi í Hvoli og spjallað fram eftir áður en
Regína og Björninn fóru í sveitasæluna Melshorn. Á laugardaginn var
svo sprell á Neistatúninu, hoppukastalar og fleira og ég fór með
mömmu og Írisi. Það var ekkert smá sem ég hitti mikið af
aðkomufólki sem ég þekki og hef ekki séð í mörg ár. Þannig að ég
var í því að kjafta mikinn hluta dags. Amma og afi Írisar og svo
Sigga (stjúpan) komu svo að sækja Írisi og fór með hana á
Reyðarfjörð, þar sem hún er enn. Við
(ég,mamma,Halla,Ragna,Regína,Björn og Eydís) fórum aftur á móti út
á hótel að borða. Það var alveg fullt fullt af fólki úti að borða
og svo voru Vísnavinir að skemmta. Við vorum ekki alveg að
nenna að sitja allann tímann og fórum (yngra pakkið) heim í Hvol og
fórum í drykkjuleik og skáluðum í kampavín og fórum í orðaleik og
það var ekkert smá gaman hjá okkur, við hlógum svo mikið að fína
meikupið var nánast farið eftir smá stund. Við vorum bara að fá
okkur smá öllara. Svo bættust Addi og Ragnar Rafn í hópinn.
Það var svo gaman hjá okkur að við slepptum því að fara á
brekkusönginn sem var frá 11-12 og við fórum ekki á barinn fyrir en
að verða 01. Það var skítsæmilegt á barnum en við vorum öll
sammála um það að það var skemmtilegra heima. Við hljótum að
vera svona skemmtileg frændsystkin að við erum sjálfum okkur
nóg! Engin okkar meikaði eftirpartý og við (ég, Halla
og Ragna) vorum allar komnar heim fyrir 4. Fengum okkur þá að borða
og svo í háttinn. Ég var í allgjörri leti á sunnudaginn,
horfði á nokkrar myndir í tölvunni uppi í rúmi, þar á meðal
The Neverending Story sem ég hef ekki horft á í mööööörrrrg
ár. Svo var farið í hammara í sjoppunni og svo aftur heim í
leti. Ég held að klukkan hafi verið að verða 6 í morgun þegar
ég var svona að sofna, var eitthvað búin að vera að dotta yfir mynd
sem ég var að horfa á en ég slökkti á tölvunni um 6! Í dag er
ég svo bara búin að vera að pakka niður, þvo, fara í sund, hangsa
og njóta þess að vera í fríi! Ætli stefnan þegar
ég kem heim frá Danaveldi, sé ekki bara að splæsa í tjald og fara í
Ásbyrgi um Verslunarmannahelgina. Sé til hvað ég verð
blönk þegar ég hef misst mig í H&M úti. Svo á maður eftir
að mála húsið að utan í fríinu! Jæja það er best að
slútta þessu hér og fara að leggja lokahönd á "niðurpakkið". Kveð
að sinni Drabban
»
06.07.2007 10:53:32 / Dröfn
Bara að athuga hvort eitthvað fari hér inn. Reyndi 3 í gær en
það skilaði sér ekki inn. Ef þetta tekst þá reyni ég að
skrifa eitthvað um helgina. Kveðja Drabban
»
25.06.2007 21:10:38 / Dröfn
Afmælispartýið var rosalegt!!! Brjálað gaman, fullt af
fullu fólki, gítarspil og söngur!! ég held að allir hafi skemmt sér
mjög vel. Ég held að síðustu gestirnir hafi farið um 7 um
morguninn. Gólfið var ógeð, en ekkert skemmdist þrátt fyrir
brjálaða drykkju! Ég ætla ekki að fara út í details úr
partýinu en læt nokkrar myndir fljóta með! Þakka svo
öllum sem komu í partý og héldu uppi stuðinu! Nýji
flotti gítarinn sem ég fékk í afmælisgjöf var alveg að gera sig og
var óspart notaður langt fram á morgun. Sunnudagurinn var
ekki eins skemmtilegur enda þurfti að þrífa og það var ekki gaman.
En ég fékk aðstoð frá mömmu, Rán og Halldísi og það var æði enda
væri ég sjálfsagt enn að ef ég hefði þurft að gera þetta
sjálf. En það er líka á hreinu að það verður ekki haldið
annað eins fyllerý hér í Hvoli. Framvegis verður farið úr
bænum þegar ég á afmæli. Ég er samt ekki að segja það að hér
megi ekki drekka aftur, bara ekki svona fjölmennt partý með öðrum
eins fjölda fólks! Ég nenni ekki að segja meira frá partýinu, er
búin að vera á leiðinni að gera það síðan um síðustu
helgi.
Ég er annars farin suður í sveitina til hennar Berglindar minnar
og Birkis og skoða litlu prinsessuna þeirra. Við Árný erum að
leggja í hann með skvísurnar okkar. Lítur út fyrir kósí og
skemmtilega helgi með skemmtilegu fólki á frábærum
stað. Ekkert að frétta annars. Segi frá einhverju eftir
helgina. Annars koma Halla og Ragna þann 10. júlí
á Djúbbann og við erum alveg að telja niður dagana í
þær. Segi bara góða helgi allir! Kveðja
Drabban











»
20.06.2007 00:16:27 / Dröfn
Jæja það gerðist í dag!!! Ég
er orðin 30 ára!!
Mér varð ekki meint af og eins
og sjá má á myndinni þá lýt ég nú alls ekkert út fyrir að vera
svona gömul.
Er það nokkuð??????

»
14.06.2007 18:15:19 / Dröfn
Enginn tími til að blogga?!!!!
það er ekki eins og ég búi í einhverri stórborg þar sem það
tekur klukkutíma að komast á milli staða. Það er ekki heldur eins
og ég sé í 150% vinnu og eigi mér ekkert líf utan hennar. Það er
ekki heldur eins og ég eigi ekki tölvu eða hafi ekki aðgang að
netinu! nei nei það sem er að hrjá mig og þessa blessuðu heimasíðu
er bara það að það er ekkert að gerast skemmtilegt í lífi mínu
þessa dagana sem vert er að skrifa um. Hitt þó heldur skemmtilegir
hlutir því hún Kristín amma mín lést á þriðjudaginn. Hún
verður jarðsett laugardaginn 23. og það er akkúrat dagurinn sem ég
var búin að plana að halda upp á 30. afmælið mitt. Ég er búin að
bera það undir nokkra ættingja hvort þeim finnist það óviðeigandi
að ég haldi feitt partý heima hjá mér sama dag og amma mín verður
jörðuð en það virðast allir vera á því að ég haldi mig bara við
planað partý. Ég á von á gestum frá stórborginni þessa helgi
í heimsókn og það er víst ekki auðvelt fyrir borgarbörn að breyta
plönum sí svona eins og það er nú ekki mikið mál fyrir okkur hér
úti á landi. Ég er víst búin að lofa partýi með gítar og stuði og
ég er að vinna í því þessa dagana að plotta út góða
partýgítarleikara og bjóða þeim í afmælið mitt!!! Ég þekki þá
nokkra og ég er viss um að þeir eru til í að koma. þegar ég
segi þeir! þá á ég bara við karlmenn því einhverra hluta vegna er
engin hæf partý-gítarleikona hér í bænum, fyrir utan Malin sem er
sænsk og því miður verður hún í Svíþjóð í sumar þannig að ekki
getur hún haldið uppi stuðinu. Ég bíst við að ég hafi
smá bollu í partýinu en ég ætla að vona að sem flestir taki með sér
bakkus þannig að allir verði kátir og glaðir fram eftir
kvöldi/nóttu. Svo á það bara eftir að koma í ljós hvað
afmælisbarnið höndli mikið djamm og vöku þar sem aldurinn er svo
sannarlega að færast yfir!!! ég er búin að kvíða þessu í
minnsta kosti 2ár að verða þrítug og ég sver það að ég átti það til
að fá í magann við tilhugsunina. Ég vona að það líði
hjá. Þessi stress/hræðslu árátta með aldurinn er líklega
tengd því að stundum hugsa ég til þess að ég sé að verða þrítug, ég
er einhleyp, í skítlaunuðu djobbi,ekki búin að ákveða hvað ég ætla
að verða þegar ég verð stór(verð mjög líklega aldrei stór þannig að
mér liggur kannski ekkert á) og svo það að ég bý hjá mömmu, á ekki
bíl og ekki þak yfir höfuðið!!! þetta hljómar kannski allt illa en
mér líður bara alls ekki illa yfir þessu þó svo að ég fái stundum
þá spurningu frá fólki ,, ætlar þú ekkert að fara að kaupa þér hús
eða íbúð, Dröfn???" Ég er bara svo sátt við það að búa hjá
mömmu og mamma er hæst ánægð að hafa okkur Írisi hjá sér því annars
væri hún ein í þessu vel stóra húsi og henni mundi sjálfsagt
leiðast jafn mikið og mér ef hún byggi ein og ég byggi ein með
Írisi annarsstaðar. Hvoll er heimilið okkar Írisar og mömmu og við
erum allar sáttar við það. Það er ekkert að því að vera þrítug og
búa hjá mömmu sinni. Ég á ekki bíl einfaldlega vegna þess að
mig langar ekki í bíl og hef ekki þörf á því að eiga slíkan þar sem
hér er stutt á milli allra staða. Ég mæti í vinnu klukkan 9 á sama
tíma og mammaog er búin klukkan 4 á sama tíma og mamma þannig að
við mæðgur erum bara allar samferða í vinnu og úr. Auk þess langar
mig svo hrikalega í Mustang, gamlan, háværann kagga og það er bara
enginn bíll sem hefur heillað mig síðan ég seldi Nissaninn
minn(blessuð sé minning hans, fylgist þó með honum í gegnum
vinkonu, þar sem bróðir hennar keypti hann af mér) og ég er alltaf
að bíða eftir að detta niður á auglýsingu með draumabílnum sem enn
hefur ekki gerst. Ef ég þarf að fara eitthvað út fyrir rörahliðið
þá hefur það aldrei verið vandamál að fá mömmu bíl lánaðann,
reyndar förum við oftast saman ef við förum eitthvað þannig að það
er ekki eins og ég sé að fá hann neitt mikið lánaðann. já og
karlamálin......ég er einhleyp vegna þess að ég er búin að fá mig
fullsadda af svoleiðis aukabúnaði í bili og þá meina ég stóru bili.
Flestir vita nú hvaða reynslu ég hef af karlmönnum svo það ætti
engum að undra þó ég sé ekki farin að örvænta piparjónkulífið. Átti
ágætis vin fyrir ekki svo löngu og það var fínt. Ég er samt ekkert
að segja að ef "sá rétti" mundi byrtast að ég skellti neitt
hurðinni á hann eða neitt slíkt. Ég á bara ekkert von á því að
finna hann neitt á næstunni og kannski ekki fyrr en ég verð
komin á elliheimilið en þá er það bara gott mál. Ég sé ekki
að ég fari að hitta neinn hér á Djúbbanum og ef það er
eitthvað vandamál þá er það að hér eru allir frændur mínir eða þá
að það eru engir álítlegir hér. Ég er alls ekki ánægð
með launin sem ég er á en það sem ég er ánægð með er það að ég er
að vinna með frábærum stelpum/konum og mér finnst gaman að
vinna á stað þar sem ég á vinkonur. Ég er með tvær af þeim sem
ég kalla einar af mínum betri vinkonum á vinnustaðnum mínum og það
er sko ekki hægt að kvarta yfir því. En ég er nú
samt enn að reyna að finna mér eitthvað til að læra svo ég
geti nú kannski unnið eitthvað sem gefur meira af sér. Ég er
alveg virkilega sátt við að búa hér á Djúpavogi og
ég vil helst hvergi annarsstaðar vera og það sem ég set
mér markmið með ef ég drullast nú einhvern tímann í skóla þá er það
að læra eitthvað sem nýtist hér á staðnum. Mig
langar ekki héðan og helst vildi ég geta tekið
eitthvað nám utanskóla svo ég þurfi nú ekki að flytja fæti út
fyrir rörahliðið. Hvað get ég sagt annað en að ég
sé bara fullkomnlega sátt við mig og mitt og get ekki kvartað yfir
neinu(kannski smáatriðum sem skipta engu þegar maður hefur það gott
, þá helst peningum). Ég býst orðið við því að það sé ekkert svo
slæmt að verða 30 ára og eiga ekki neitt(eignir) þegar maður er
sáttur. Það má eiginlega líta á þennan pistil minn (sem
er orðin í það lengsta) sem sáttaryfirlýsingu yfir aldrinum!!!! En
það má svo sannarlega kommenta hér fyrir neðan ef það er einhver
sem vill koma að einhverju eins og það að ég sé með eindæmum
nægjusöm og þurfi að fara að taka mig á í lífinu!!! Ég tek öllu sem
þið viljið segja ef það er eitthvað. Annars slútta ég þessu hér með
og segi SKÍTT MEÐ ÞAÐ AÐ ÉG SÉ AÐ VERÐA 30 ÁRA!! I CAN TAKE IT AND
I CAN LIVE WITH IT!!!! Kveðja Drabban (enn unga í anda)
»
05.06.2007 20:53:55 / Dröfn
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|